Hér er að finna ýmsar gagnlegar vefslóðir fyrir nemendur og foreldra. Google SketchUp er frítt teikniforrit sem er auðvelt í notkun. Þetta er forrit sem allir geta nýtt sér að teikna eða skissa auðveldlega í þrívídd. Ókeypis þýðingaþjónusta Google á netinu þýðir samstundis texta og vefsíður. Í stuttu máli þá er Google Earth skemmtilegt og fróðlegt 3D prógram sem byggir á gervihnattamyndum, kortaupplýsingum og Google leitarvél. Pivot Stickfigure Animator er forrit sem hannað var af Peter Bone. Það gerir notendum kleift að búa til teiknimynd þar sem spítukarlar eru notaðir. Ókeypis gagnvirkur vefur á ensku: Starfall.com er einstaklega flottur vefur og vel til þess að fallinn að kenna ungum krökkum undirstöðuatriði í ensku. Myndasöguforrit: Comic Life er
hugbúnaður til að setja saman myndaseríur og teiknimyndasögur. Hægt er að hlaða
niður prufuaðgang fyrir 30 daga eða kaupa áskrift. Ókeypis myndvinnsluforrit: Paint.Net Sebran er ókeypis gagnvirkt forrit fyrir yngstu bekki grunnskólans: Einfalt og þægilegt forrit fyrir unga nemendur þar sem hægt er að æfa bókstafi, tölustafi, íslensku, stærðfræði, samlagningu, frádrátt, margföldun, ensku og jafnvel dönsku. Um er að ræða ókeypis kennsluforrit sem hlaða má niður af Netinu. Myndasöguforrit sem er hægt að hlaða ókeypis af netinu. Forritið er frábært til að nota í kennslu ungra barna. Með því geta nemendur búið til sínar eigin myndasögur með texta, tali og hljóði eða tónlist á mjög einfaldan hátt. Sjá leiðbeiningar hér |